Canvas-moli / Canvas Tip

Canvas-moli: Ný tól fyrir endurgjöf utanaðkomandi matsaðila

Í þessum Canvas-mola viljum við kynna tvö ný verkfæri í Canvas sem geta hjálpað nemendum að fá skipulagða endurgjöf frá aðila utan námskeiðsins: Beiðni um endurgjöf á verkefni (e. Feedback Request on Work) og beiðni um endurgjöf á hæfni (e. Feedback Request on Skills). Bæði verkfærin eru hluti af FeedbackFruits verkfærasafninu. Matsaðilinn þarf ekki að hafa aðgang að Uglu, Canvas eða FeedbackFruits, en endurgjöfin skilar sér inn í FeedbackFruits verkefnið í Canvas.

Verkfærin geta nýst í starfsnámi, vettvangsnámi, klínísku námi, starfsþjálfun, mentora- eða handleiðsluverkefnum, verkefnavinnu, ferilmöppum og öðrum námsverkefnum þar sem endurgjöf frá aðila utan námskeiðsins á við.

Í beiðni um endurgjöf á verkefni biðja nemendur um endurgjöf á innsent efni, til dæmis skýrslu, drög, verkefnaskrá, ferilmöppu eða annað efni.

Í beiðni um endurgjöf á hæfni biðja nemendur um endurgjöf á tiltekna hæfni eða færni. Verkfærið er ætlað fyrir aðstæður þar sem endurgjöfin byggir á athugun á færni nemandans í framkvæmd, frekar en á innsendu efni.

Í báðum tilvikum skilgreinir kennarinn viðmið, matskvarða, einkunnakvarða, leiðbeiningar, skilafresti og aðrar stillingar. Ef kennari leyfir geta nemendur valið þau viðmið, t.d. í matskvarða, sem þeir vilja fá endurgjöf á.

Nemandinn velur hver á að veita endurgjöfina og sendir beiðnina úr verkefninu. Matsaðilar geta til dæmis verið leiðbeinendur á vinnustað, mentor, klínískir leiðbeinendur, utanaðkomandi matsaðilar eða samstarfsaðilar úr atvinnulífinu. Þeir fá tengil í tölvupósti og geta gefið einkunnir og/eða skriflegar athugasemdir út frá völdum viðmiðum.

Leiðbeiningar um uppsetningu og notkun beggja verkfæra eru aðgengilegar á canvas.hi.is:

Beiðni um endurgjöf á hæfni
Beiðni um endurgjöf á verkefni