Heim > Stjórnsýsla > Um ólík hlutverk í námskeiði

Um ólík hlutverk í námskeiði

Þegar kennari er skráður á námskeið í Uglu er hægt að velja úr nokkrum hlutverkum svo sem kennari, umsjónarkennari eða gestakennari. Það hlutverk sem er valið fylgir kennaranum yfir í Canvas og kemur fram við nafn kennarans þar, í þátttakendalista námskeiðs (fólk).

Hlutverkin stýra einnig heimildum kennarans á námskeiðsvefnum, t.a.m. hvort kennari hefur aðgang til að setja upp eða eyða efni, skrá einkunnir o.fl. Flest hlutverkin gefa allar heimildir kennara í námskeiði. Tvö af þessum hlutverkum gefa takmarkaðri heimildir. Sjá nánar hér fyrir neðan.

Hlutverk sem gefa allar heimildir kennara

  • Umsjónarkennari/Course Leader
  • Kennari/Teacher
  • Aðstoðarkennari/Assistant Lecturer
  • Leiðbeinandi/Supervisor
  • Meðleiðbeinandi/Co-Supervisor
  • Umsjónarmaður/Coordinator

Hlutverk sem gefa takmarkaðar heimildir

Aðstoðarnemandi/Teaching Assistant

Hlutverkið gefur flestar þær heimildir sem kennari hefur á námskeiðsvef með nokkrum mikilvægum undantekningum.

Aðstoðarnemandi getur hlaðið inn skrám, búið til síður, sett upp verkefni og próf, skipt nemendum upp í hópa, sent tilkynningar og gert almennt það sem þarf til að setja upp og gera námskeiðsvef tilbúinn. 

Hlutverkið veitir ekki heimild til að:

  • Birta námskeiðsvef.
  • Vinna í eða skoða einkunnir og endurgjöf, hvorki aðgangur að einkunnabók eða SpeedGrader.
  • Setja upp matskvarða.
  • Skila verkefni fyrir hönd nemanda.
  • Skoða tölfræðigreiningu námskeiðs.
  • Setja upp eða vinna með hæfniviðmið.

Athugið að listinn er ekki tæmandi.

Gestakennari/Guest Lecturer

Hlutverkið gefur notanda aðgengi að eftirfarandi aðgerðum á námskeiðsvef:

  • Setja inn skrár og búa til síður.
  • Setja upp verkefni og próf.
  • Setja upp spurningabanka v/prófa (gefur ekki aðgang að spurningabönkum sem aðrir hafa sett upp).
  • Breyta atriðum sem hann eða aðrir hafa sett upp á námskeiðsvefnum.*

Hlutverkið veitir ekki aðgang að:

  • Einkunnabók og SpeedGrader, notandinn getur því hvorki skráð né séð einkunnir og endurgjöf.
  • Tilkynningum. Gestakennari getur ekki sent eða séð tilkynningar í námskeiði.
  • Þátttakendalista námskeiðs og hópum.
  • Tölfræðigreiningu námskeiðs.

Gestakennari getur ekki eytt atriðum á námskeiðsvefnum.

Athugið að listinn er ekki tæmandi.

 

Í Canvas hanga oft margar heimildir saman sem er ekki mögulegt að aðskilja t.d. ef heimild til að breyta atriðum á námskeiðsvef yrði tekin af hlutverki gestakennara gæti kennarinn heldur ekki breytt eða lagfært eigin atriði.