Heim > Stjórnsýsla > Um Canvas kerfisaðgang starfsfólks

Um Canvas aðgang starfsfólks

Til að geta unnið í Canvas þarf starfsmaður aðgang að kerfinu. Aðgangur er gefinn í gegnum sk. kerfishlutverk. Um nokkur mismunandi hlutverk er að velja. Hverju þeirra tilheyra heimildir til að framkvæma ólíkar aðgerðir í kerfinu. Sem dæmi þarf starfsmaður sem aðstoðar nemendur með Canvas aðrar heimildir í kerfinu en sá sem aðstoðar kennara deildar við skráningu einkunna. Það hlutverk sem starfsmaður fær miðast við þau verkefni sem hann þarf að sinna í Canvas.

Hvaða kerfishlutverk hef ég í Canvas?

Svona ferðu að til að sjá hlutverkið þitt í Canvas.

  1. Smelltu á stjórn í bláa borðanum og á fræðasvið eða deild sem þú hefur aðgang að.

    stjórn  

  2. Farðu í stillingar neðst í valmyndinni vinstra megin.
  3. Smelltu á flipann stjórnendur efst á síðunni. Hér ættir þú að sjá nafnið þitt ásamt heiti hlutverks.
    Athugaðu að í sumum tilvikum getur starfsmaður haft mismunandi hlutverk t.d. eitt fyrir námskeið fræðasviðsins en annað hlutverk innan tiltekinnar deildar sem gefur þá oft ítarlegri heimildir.

    stjórn   

  4. Samkvæmt myndinni að ofan hefur Anna kerfishlutverkið námskeið breyta. Til að sjá nánar hvað það felur í sér skaltu skoða síðuna sækja um kerfisaðgang.