Að bregðast við sem annar notandi
Að bregðast við sem annar notandi getur verið gagnlegt í þjónustu við notendur eða við bilanagreiningu. Aðgerðin veitir aðgang eins og þú sért viðkomandi notandi. Notaðu hana aðeins þegar það er nauðsynlegt til að leysa tiltekið mál, gakktu úr skugga um að þú sért að opna réttan notanda og forðastu að framkvæma breytingar nema það sé hluti af lausn málsins. Þegar þú ert búin(n) skaltu alltaf smella á hætta að virka sem notandi.
Skoða sem tiltekinn notandi
Til að bregða sér í hlutverk notanda eru aðallega notaðar tvær leiðir:
Leiðin: Stjórn > fólk
Hægt er að fletta viðkomandi notanda upp í Canvas og smella á bregðast við sem táknið, aftan við nafn.

Leiðin: Námskeiðsvefur > fólk
Með því að opna námskeið og fara í fólk í valmynd námskeiðsins, smella á nafn nemanda, á hlekkinn bregðast við sem notandi í panel hægra megin og á halda áfram.
Þegar smellt er á nafn kennara þarf að smella á upplýsingar notandareiknings hægra megin og svo á bregðast við sem notandi.
Hætta að bregðast við sem
Til að hætta að bregðast við sem notandi þarf að smella á hætta að virka sem notandi (ekki nóg að fara til baka).
„Bregðast við sem“ þýðir í raun að skrá sig inn sem viðkomandi notandi án lykilorðs. Starfsmaðurinn getur framkvæmt aðgerðir líkt og hann sé viðkomandi notandi og frá sjónarhóli annarra notenda lítur út eins og sá notandi hafi framkvæmt viðkomandi aðgerðir. Notkunarskrár kerfisins sýna þó skýrt að það var starfsmaðurinn sem framkvæmdi aðgerðirnar fyrir hönd notandans.
