Skilum nemenda hlaðið niður
Vegna netárásar er frekar mælt með því að hlaða niður skilum nemenda sem pdf skrá.
Hlaðið niður sem PDF
Til að hlaða niður skilum nemanda (eða hóps) sem PDF skjali (þó svo að skilin hafi verið á öðru formi) er farið svona að:
- Opnaðu verkefnið.
- Smelltu á SpeedGrader, hægra megin.
- Veldu nafn nemanda (eða hóps)

- Smelltu á niðurhalstáknið í efra horni vinstra megin.

Athugið:
- Þessi möguleiki er í boði þegar hægt er að birta skrána í skjalaskoðara SpeedGrader.
- Þessi möguleiki hleður niður skilum ásamt athugasemdum kennara ef þær voru settar inn í skjalið.
- Skrár sem eru stærri en 100 MB og skrár sem eru varðar með lykilorði eru ekki umbreyttar í DocViewer.
Upprunalegum skilum hlaðið niður
Verkefnaskilum allra nemenda hlaðið niður í einu, á því formi sem þeim var skilað.
- Opnaðu verkefnið.
- Smelltu á hlaða niður skilum.

- Skilin hlaðast niður sem ZIP skrá. Afþjappaðu skrána t.d. með því að hægri smella og velja afþjappa/extract all.
Athugið: Ef nemandi skilaði verkefninu oftar en einu sinni fylgja aðeins nýjustu skilin með.
Hægt er að hlaða niður með þessum hætti innsendum skjölum textaskilum, vefslóðum og Google Docs-skilum, en ekki upptökum.




