Heim > Kennarar > Námsefnið > Myndvinnsla > Myndsnið og þyngd

Myndsnið og þyngd

Þyngd mynda

Þegar myndir eru mikið notaðar í námskeiði þarf að huga að þyngd þeirra. Almennt gildir að því stærri sem myndir eru og því hærri sem gæði þeirra eru því þyngri eru þær. Þung mynd getur valdið því að vefsíða er lengur að hlaðast og birtast notanda. Ef passað er upp á að þjappa myndir fyrir birtingu á vef (í Canvas) eru þær fljótari að birtast og hæfileg þjöppun kemur ekki niður á sýnilegum myndgæðum. Skoðaðu hvernig þú getur þjappað og klippt til mynd.

Myndir sem eru birtar á námskeiðsvef vistast í skráarsafni námskeiðs. Skráarsafnið getur rúmað gögn upp á 4,2GB sem ætti að vera meira en nóg pláss ef rétt er farið að.

Myndsnið

Algengustu myndsniðin eru jpg png gif svg.

JPG – Oftast má miða við að vista ljósmyndir í jpg sniði.
PNG – Grafískar myndir með hreinum litaflötum hentar yfirleitt best að vista sem png.
SVG – Í SVG (Scalable Vector Graphics) myndsniði stýrist stærð myndar af vektorútreikningi. Slíka mynd er hægt að stækka og minnka án þess að hún tapi nokkru af skýrleika sínum. SVG snið er t.d. notað fyrir skýringarmyndir og kort sem á að birta á vef.
Að velja rétt myndsnið getur m.a. haft áhrif á þyngd myndar, sjá nánar í hlutanum um að klippa og þjappa mynd.

Myndir í PowerPoint kynningu gerðar léttari

Nemendur geta átt í vanda með að opna kynningar sem innihalda margar þungar myndir. Þó að kynning opnist vandræðalaust hjá kennara á það ekki endilega við um aðra notendur þar sem tæknilegar forsendur eru ólíkar. Með því að að þjappa myndirnar verður kynningin léttari og tekur minna pláss í skráarsafni námskeiðs. Ef það er gert á réttan hátt er ekki sjáanlegur munur á gæðum myndanna.

PowerPoint býður upp á möguleika á að þjappa allar myndir glærukynningar fyrir birtingu á vef með einni aðgerð. Sjá nánar í leiðbeiningum Microsoft: Reduce the file size of your PowerPoint presentations.