Myndir hlið við hlið
Áður var algengt að raða myndum hlið við hlið með því að setja þær inn í töflu. Það hentar illa fyrir snjalltæki, því taflan heldur oft fastri breidd og myndirnar raðast þá ekki eðlilega eftir skjástærð. Notandinn getur því þurft að skrolla bæði til hliðar og upp og niður til að sjá allt efni töflunnar. Hér fyrir neðan eru tvær leiðir til að stilla myndum hlið við hlið þannig að henti einnig snjalltækjum.
Innsetning mynda með tákngerðartóli ritilsins
Með tákngerðartólinu er einfalt að setja upp myndir hlið við hlið, birta jafnstórar og hafa texta fyrir neðan hverja mynd. Myndirnar endurraða sér út frá skjástærð notandans sem gerist ekki þegar myndum er t.d. raðað inn í töflu. Þessi leið kallar ekki á vinnu í html viðmóti. Tákngerðartólið leyfir 32 stafabil í texta með mynd.

Tilbúið sniðmát með myndum hlið við hlið

Í opnu efni í Canvas er hægt að nálgast sniðmát með myndum hlið við hlið sem endurraða sér út frá skjástærð. Sniðmátið sem er venjuleg síða er hægt að flytja inn í námskeið. Síðan vistast inn í síðusafn námskeiðsins.
Til að skipta út myndum þarf að vinna í html viðmóti ritilsins, ekki eru takmörk fyrir lengd texta.
Til að finna sniðmátið í opnu efni skaltu setja myndir sem endurraðast út frá skjástærð í leitina.
