Heim > Kennarar > Grunnur námskeiðsvefs > Tilkynningar kennara og skilaboð

Tilkynningar kennara og skilaboð

Í myndbandinu er sýnt hvernig á að:

  • Birta námskeið.
  • Senda tilkynningu.
  • Birta nýjustu tilkynningar efst á heimasíðu námskeiðs.

Tilkynningar

Markmið

Hverjum námskeiðsvef fylgir tilkynningatól, sem gerir kennurum kleift að senda nemendum tölvupóst. Tilkynningarnar vistast jafnframt á námskeiðsvefnum. 

Nauðsynlegt er að birta námskeiðsvef nemendum áður en fyrsta tilkynning er send til að hún berist nemendum í tölvupósti. Tilkynningahlekkurinn er ósýnilegur nemendum þar til tilkynning hefur verið send.

Eiginleikar

Tilkynningar sendast að öllu jöfnu tafarlaust í tölvupósti en notendur geta stillt í eigin stillingum að fá tilkynningar frá námskeiði strax, daglega, vikulega eða alls ekki.

Tilkynningar bjóða upp á ýmsa valkosti:

  • Senda viðhengi.
  • Leyfa nemendum að tjá sig.
  • Leyfa nemendum að líka við tilkynningu.
  • Birta tilkynningu yfir ákveðið tímabil.
  • Heimila hlaðvarpsstreymi

 

Mælt með

Gott er að skoða stillingar tilkynninga í eigin notandareikningi t.d. hvort valið er að fá í pósti tilkynningar sem maður sendir sjálfur. 

Skilaboð

Þegar senda þarf póst til eins nemanda eða hóps í námskeiði er þægilegt að nota skilaboð í Canvas valmyndinni. Margir kennarar velja að nota skilaboðakerfið til að halda utan um samskipti við nemendur í stað hefðbundins tölvupósts. Í einkunnabókinni er einnig hægt að senda skilaboð til nemenda, t.d. þeirra sem ekki hafa skilað verkefni og fleira.