Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Einkunn og endurgjöf > Ræsa SpeedGrader eftir nemendahópum
Ræsa SpeedGrader eftir nemendahópum
Við mat á verkefni er mögulegt að velja að opna einungis verkefnaskil tiltekins nemendahóps í speedgrader (athugið að hér er ekki átt við hópverkefni). Þetta getur t.d. hentað í stórum námskeiðum þar sem námsmati er skipt á milli kennara.
Dæmi:
- Kennari A metur verkefni nemenda í hópi 1
- Kennari B metur verkefni nemenda í hópi 2
Til að gera þetta þarf að virkja Ræsa SpeedGrader síað eftir nemendahópum í stillingum námskeiðsvefs (neðst í valmynd námskeiðs).
Svona er farið að:
- Farðu í stillingar neðst í valmynd námskeiðsins. Flipinn Námskeiðsupplýsingar efst á síðunni er valinn.
- Merktu við RæsaSpeedGrader síað eftir nemendahópum og smelltu á Uppfæra námskeiðsupplýsingar neðst á síðunni.
Eftir að stillingin hefur verið virkjuð virkar námsmatið eins og áður að öðru leyti en því að kennari þarf að velja hóp áður en SpeedGrader er opnaður.

ATH.: Stillingin á við námskeiðið í heild. Einungis er hægt að opna SpeedGrader út frá hópum á meðan hún er virk. Um leið og stillingin er tekin af virkar SpeedGrader á hefðbundinn hátt.
