Canvas-moli / Canvas Tip

Um FeedbackFruits

FeedbackFruits er safn verkfæra sem hefur verið bætt inn í Canvas og býður upp á fjölbreytta möguleika til að efla samvinnu og virkja nemendur. FeedbackFruits virkar nánast sem hluti af Canvas, verkefni tengjast nemendahópum, skilafrestir birtast í námskeiðsdagatali og einkunnir í einkunnabók, gildi verkefni til einkunnar. Við þróun FeedbackFruits er kennslufræði lögð til grundvallar, lesa um grunngildi FeedbackFruits.


Hvað er hægt að gera með FeedbackFruits? 

Með FeedbackFruits er t.d. hægt að gera Word eða pdf skjalið gagnvirkt og láta nemendur svara spurningum eða taka þátt í umræðum um tiltekna efnishluta skjalsins, gefa nemendum kost á að meta vinnuframlag hópfélaga út frá sérstökum viðmiðum kennara, láta nemendur svara spurningum inn í glærukynningunni þegar kennari kynnir, setja upp jafningjamat, sjálfsmat og ýmislegt fleira. Nánari fróðleikur um verkfærin í FeedbackFruits.


Notkun á FeedbackFruits 

Kennarar Háskóla Íslands hafa tekið FeedbackFruits fagnandi og nota nú þegar mörg af verkfærum kerfisins. Á þessari stundu hafa yfir 2000 nemendur þegar skilað eða tekið þátt í ólíkum FeedbackFruits verkefnum.

Í myndbandinu fyrir neðan er kynning á FeedbackFruits þar sem kennarar tjá sig. 

Stuðningur 

Í Canvas leiðbeiningunum kennara eru stutt kynningarmyndbönd á íslensku um hvert og eitt verkfæri FeedbackFruits, þar sem farið er yfir tilgang værkfæris og virkni. Auk þess eru skýrar leiðbeiningar á ensku bæði fyrir nemendur og kennara.

FeedbackFruits býður upp á netspjall þar sem kennarinn getur fengið aðstoð 24 klst. á sólarhring alla virka daga. Netspjallið kemur fram í neðra vinstra horni verkefnis. Eins og alltaf er einnig hægt að senda beiðni um aðstoð á help@hi.is.