Að byrja í Canvas
Þessi síða er góður byrjunarstaður fyrir nemendur sem eru að nota Canvas. Hér finnur þú helstu atriðin til að rata í námskeiðum, finna námsefni, skila verkefnum og fylgjast með einkunnum og endurgjöf. Mundu líka eftir leitinni á vefnum, hún getur hjálpað þér að finna leiðbeiningar hraðar.
Canvas er öruggt netumhverfi fyrir námskeiðin þín við HÍ. Kennarar nota Canvas til að birta upplýsingar og námsgögn, eiga samskipti við nemendur og halda utan um verkefni og námsmat. Til að opna Canvas þarf að skrá sig inn í Uglu.
Í Canvas getur þú til dæmis:
- Nálgast námsefni og gögn.
- Horft og hlustað á fyrirlestra og kennslumyndbönd.
- Sótt kennslustundir í beinni.
- Skilað verkefnum og tekið próf.
- Tekið þátt í umræðum.
- Unnið í hópum.
- Skoðað endurgjöf og einkunnir.
