Canvas-moli / Canvas Tip

Kennsluáætlun: Aðgengi, samræmi og vinnulag

Hlutverk kennsluáætlunar er að veita nemendum skýrar upplýsingar um námskeið, m.a. um markmið námskeiðs og þá hæfni og þekkingu sem þau munu öðlast eftir að hafa lokið námskeiði. Kennsluáætlun virkar sem leiðarljós nemenda í gegnum námskeið. Hún hjálpar þeim að rata og sjá hvað er framundan, átta sig á skipulagi námskeiðs, hvað þar er að finna og hvar.

Sem ein af grunnstoðum námskeiðs á kennsluáætlun sinn tengil í aðalvalmynd námskeiðsvefs í Canvas ásamt sérstöku svæði fyrir innihaldið. Staðsetning kennsluáætlunar gæti við fyrstu sýn litið út fyrir að vera smáatriði en í hnotskurn ýtir rétt staðsetning undir aðgengi og gagnsæi og sparar kennara tíma.

tengillinn kennsluáætlun í valmynd námskeiðs

Auðvelt aðgengi fyrir nemendur

Þegar innihald kennsluáætlunar er skráð beint í Canvas, í þar til gert svæði fyrir kennsluáætlun og efnið límt inn eða unnið í Canvas ritlinum auðveldar það skoðun í símum og öðrum snjalltækjum. Texti endurraðast þá út frá skjástærð notandans. Vegna fatlaðra nemenda sem nota talgervla eða önnur tæki til að lesa vef er þetta sérstaklega áríðandi en kemur sér í raun vel fyrir alla.

Skilvirkt vinnulag kennara

Það er fljótlegra hjá kennara að uppfæra efni kennsluáætlunar, svo sem ef breyta þarf dagsetningu eða laga innsláttarvillu, þegar innihaldið hefur verið sett beint inn í Canvas ritilinn, þá þarf bara að breyta og vista. Ef kennsluáætlun er hins vegar deilt sem Word eða pdf skjali þarf að finna skjalið, opna í viðeigandi forriti s.s. Word, breyta, vista, hlaða aftur upp í Canvas og eftir atvikum búa til tengilinn í kennsluáætlunina upp á nýtt.

Samræmi á milli námskeiða

Það hefur lengi verið umkvörtunarefni nemenda að námskeiðsvefir séu ólíkir og erfitt sé að finna námsgögn eða mikilvægar upplýsingar. Með því að hafa kennsluáætlun ávallt á sama stað í hverju námskeiði stuðlum við að auknu samræmi í námskeiðum nemenda. Það dregur úr þeim tíma sem nemendur myndu annars eyða í leit að nauðsynlegum námskeiðsupplýsingum.

Leiðbeiningar og fróðleikur um kennsluáætlun

Ef þú hefur spurningar eða þarft aðstoð skaltu ekki hika við að hafa samband: Hjálp og ráðgjöf með Canvas.