Heim > Kennarar > Upptökur og fjarfundir > Zoom > 4. Zoom fundarboð afritað á síðu og í dagatal námskeiðs
4. Zoom fundarboð afritað á síðu og í dagatal
Í myndskeiðinu er útskýrt hvernig tengill á Zoom fund er settur á síðu og í dagatal námskeiðs.
Til að láta síðu koma fram í námskeiðsdagatali þarf að merkja við bæta á verkalista nemenda neðst í uppsetningu síðunnar og velja dagsetningu og tíma. Síðan kemur þá fram bæði í verkalista nemenda (e. to-do list) og í dagatali.
Fleiri kostir þess að setja upp fundarsíðu:
- Með því að setja upp síðu er hægt að styðja við skipulag námskeiðsvefs s.s. að láta síðuna um fundinn koma fram í viðeigandi einingu/viku (e. module).
- Síða býður einnig upp á að setja nánari upplýsingar um fundinn s.s. fundardagskrá, skjöl og tengla í gögn.
- Ef fundur er tekinn upp er hægt að setja upptökuna á fundarsíðuna.
