Mögulegt er að setja spurningar inn á tímalínu myndskeiðs. Þegar myndskeiðið er spilað stoppar það við spurningu, nemandi svarar heldur síðan áfram að horfa. Myndskeiðum sem innihalda spurningar er hægt að deila rétt eins og öðrum, t.d. í gegnum ritilinn.
Ef einkunn fyrir svör nemenda á að fara í einkunnabók og reiknast sem hluti lokaeinkunnar, þarf að tengja myndskeiðið við verkefni. Þetta er gert í uppsetningu verkefnisins, við Tegund skila er valið Ytra tæki, Canvas Studio og myndskeiðið.
Leiðbeiningar á vef Instructure um innsetningu spurninga í myndskeið