Heim > Kennarar > Grunnur námskeiðsvefs > Fróðleikur um hönnun námskeiðs

Um hönnun námskeiðs

Á vef Kennslusviðs Háskóla Íslands, setberg.hi.is er að finna:  

ABC vinnustofur

Kennslumiðstöð býður upp á ABC vinnustofur. sem ætlaðar eru, hvort sem er, til að hanna námskeið frá grunni eða endurskoða námskeið. ABC aðferðin var þróuð í University College London (UCL), hún er notuð í háskólum víða um heim og hefur gefið góða raun.

Hvað er stafrænt aðgengi?

Aðgengi snýst um fólk. Stafrænt aðgengi er um að mæta þörfum fatlaðra í vefefni og stafrænum verkfærum. Það er mikilvægur þáttur í fjölbreytileika, jöfnuði og inngildingu. Aðgengi fyrir alla er lykilatriði í hönnun Canvas (sjá nánar What are the Canvas accessibility standards?). Vinna kennarans við námskeiðsvefinn getur haft áhrif á aðgengi nemenda. Þess vegna er mikilvægt að tileinka sér vinnulag og aðferðir sem styðja við aðgengi.

Vandamál í stafrænu aðgengi

Aðgengisvandamál eru hvers kyns hindranir sem gera notanda erfitt eða ókleift að fá aðgang að námskeiðsvef eða einstökum efnisþáttum, vafra um eða taka þátt í viðfangsefnum vefsins. Fatlaðir notendur nota mismunandi leiðir til að nálgast vefsíður. Þau sem geta ekki notað mús treysta t.d. á að nota lyklaborðið til að fara um vefinn, aðrir nota skjálesara til að lesa upp efni vefsíðu, eða sérstök tæki ætluð hreyfihömluðum. Vegna alls þessa er mikilvægt að fara rétt að við byggingu námskeiðsvefs og innsetningu efnis. Rangar eða óviðeigandi aðferðir geta leitt til aðgengisvandamála.

Nokkur dæmi sem orsaka aðgengisvandamál á námskeiðsvef:

  • Námskeiðsvefurinn er ekki nógu vel skipulagður og skortur á samræmi byggingu vefsins.
  • Kennsluáætlun er ekki á réttum stað.
  • Skiladagar koma ekki fram í námskeiðsdagatali.
  • Tenglar bera ekki lýsandi heiti.

Námskeiðsvefur án aðgengisvandamála er notendavænni og þægilegri fyrir alla notendur ekki einungis þau sem búa við skerðingu. Námskeiðsvefur án hindrana er jafnréttismál.

Sjá nánar gátlistann Er námskeiðsvefurinn tilbúinn?

Aðgengi í víðara samhengi snýr m.a. að inngildingu, fjölbreytileika námsefnis, kennsluaðferða og námsmats, sveigjanleika í hönnun námskeiðs og jafnri þátttöku allra nemenda.

Tengsl við kennara og samnemendur eru mikilvæg og tengjast árangri í námi. Skortur á félagslegum tengslum getur hindrað nám, virkað útilokandi og hefur meiri áhrif á nemendur í jaðarhópum. Með því að hlúa markvisst að bekkjarsamfélagi og hjálpa nemendum að tengjast hvert öðru er hægt að stuðla að því að nemendum finnist þau sýnileg og metin sem hefur jákvæð áhrif á nám. Hægt er að valdefla nemendur m.a. með því að leyfa þeim að kynnast sem flestum sjónarhornum á fræðigrein, koma til móts við mismunandi styrkleika þeirra og gefa nemendum umboð til að hafa áhrif og meiri stjórn á námi sínu.  

Kynntu þér málið nánar í gátlistanum um jafnrétti í kennslu

Það sem kennurum finnst augljóst og skýrt leggja nemendur stundum annan skilning í, finnst óreiðukennt eða jafnvel óskiljanlegt. Með því að biðja nemendur um að skoða skipulag og virkni námskeiðsvefs og gefa álit, færðu bestu gagnrýnendur sem völ er á. Þetta er t.d. hægt að gera með því að setja upp umræðu eða fá tilbúna könnun um gæði námskeiðsvefs til að leggja fyrir nemendur í þessum tilgangi. Athugaðu að gefa kost á nafnleysi í uppsetningu svo nemendur geti ófeimnir sett fram sína skoðun.

Ávallt ætti að kynna námskeiðsvef fyrir nemendum í byrjun námskeiðs og útskýra hvernig vefurinn muni verða notaður.