Canvas-moli / Canvas Tip

Hvers konar myndbönd leiða til besta námsárangurs nemenda?

Notkun myndbanda í kennslu hefur vaxið síðustu misseri. Í MOOC (Massive Open Online Course) námskeiðum s.s. á Coursera, edX og Udacity, eru myndbönd grundvallarþáttur í efni námskeiða. Ein brýnasta spurningin varðandi gerð kennslumyndbanda er: Hvers konar myndbönd leiða til besta námsárangurs nemenda? Hjá edX var rannsakað „video engagement“ sem kalla mætti helgun í áhorfi, einnig hægt að tala um virkni, að vekja áhuga eða að efnið sé grípandi. Rannsóknin tók til 6,9 milljón áhorfa (áhorf=einn nemandi horfir á eitt myndband) í fjórum námskeiðum MIT, Harvard og Berkeley.

Niðurstöður byggja á bæði megindlegri og eigindlegri rannsókn. Kannað var hvers konar myndbönd leiða til mesta áhorfsins og besta námsárangurs nemenda. Einnig voru tekin viðtöl við starfsfólk edX sem sér um framleiðslu kennslumyndbanda.

Út frá niðurstöðum voru settar saman ráðleggingar fyrir kennara og þá sem framleiða myndbönd til kennslu svo nýta megi möguleika miðilsins betur og stuðla með því að aukinni helgun nemenda.

Þó að e.t.v. gildi svolítið önnur viðmið í venjubundnu háskólaumhverfi þá eiga þessar niðurstöður og ráðleggingar brýnt erindi til okkar sem komum að kennslu.

NiðurstöðurRáðleggingar
Lengd myndbands var lang mikilvægasta vísbending um helgun (engagement) nemenda. Styttri myndbönd auka helgun til mikilla muna.Leggja mikið í forvinnu og undirbúning við að skipuleggja efnið í styttri en 6 mínútna myndbönd. Þegar myndband fer yfir 6 mín. fer hlutfall áhorfstíma lækkandi.
Myndbönd með glærum þar sem kennarinn kemur í mynd af og til auka helgun meira en með glærum eingöngu.Leggja áherslu á eftirvinnslu. Takið upp kennarann í mynd og klippið inn í myndbandið á heppilegum stöðum.
Myndbönd með persónulegri nálgun geta aukið helgun meira en myndbönd tekin í hátækni stúdíói. Myndbönd þar sem kennarinn sat við eigið skrifborð, var nálægur í mynd og náði af og til augnsambandi við myndavélina komu betur út en þar sem kennari var í pontu, fjarlægari í mynd.Prófa að taka upp í óformlegu umhverfi þar sem kennari nær góðu augnsambandi við myndavélina. Það er líklega áhrifaríkara og þess vegna óþarfi að fjárfesta í fjárfrekri stúdíóframleiðslu.
Myndbönd í töfluteiknistíl í anda Khan Academy auka helgun meira en PowerPoint glærur eða myndbönd sem sýna kóða.Taka upp kennsluefni í Khan-stíl þegar mögulegt er. Nota teikningu, hreyfingu og sjónrænt flæði, ásamt óformlegu frjálslegu máli. Ef nauðsynlegt er að nota glærur eða kóða, bætið við áherslum með því að skissa t.d. yfir glærurnar/kóðann með því að nota stafræna spjaldtölvu.
Jafnvel þegar fyrirlestur í kennslustofu er tekinn upp fyrirfram, í háum gæðum og bútaður niður að hætti MOOC er hann ekki eins grípandi, og skipulagðar stuttar upptökur. Einnig getur verið ómögulegt að skipta upp fyrirlestri í smærri einingar sem ekki var skipulagður með það í huga upphaflega.Ef kennari heldur sig fast við upptökur á kennslu ættu þeir að skipuleggja með MOOC sniðið í huga.

video-lenght

Samkvæmt niðurstöðunum henta upptökur af hefðbundnum fyrirlestrum í kennslustofu ekki vel til notkunar í kennslumyndböndum á neti. Í viðtölum við þá sem sjá um vinnslu myndbanda hjá edX kom fram sú tilgáta að styttri myndbönd ykju helgun nemenda ekki eingöngu vegna lengdar myndbands heldur einnig vegna þess að styttri myndböndin væru yfirleitt betur gerð. Það krefðist mjög nákvæmrar skipulagningar að útskýra eitthvað í styttra máli.

Almennt séð þegar nýr samskiptamiðill lítur dagsins ljós, er í fyrstu ávallt tilhneiging til að nota hann á sambærilegan hátt og núverandi miðla. Í árdaga sjónvarpsins voru útvarpsþættir teknir upp og sýndir í sjónvarpi, fyrstu stafrænu kennslubækurnar voru skannaðar venjulegar bækur og fyrstu upptökur vegna kennslu voru upptökur á hefðbundnum fyrirlestrum í kennslustofu. Þegar frá líður þróast smám saman meira skapandi leiðir til að nýta eiginleika nýja miðilsins til fulls.

Heimild:

How Video Production Affects Student Engagement: An Empirical Study of MOOC Videos (PDF).