Canvas-moli / Canvas Tip

Að efla nám og endurgjöf með notkun matskvarða

Matskvarðar eru ómissandi tól til að gefa hlutlægt og gagnsætt námsmat og þeir gagnast bæði kennurum og nemendum. Námsmat með matskvarða veitir skýr og nákvæm viðmið við mat á úrlausnum nemenda. Sömu viðmið eru notuð til að meta vinnu hvers og eins sem tryggir samræmi í einkunnagjöf.

Vel unnin matskvarði gefur kost á sértækri og sundurliðaðri endurgjöf. Nemendur skilja betur einkunnagjöfina og væntingar kennarans, sem stuðlar að auknu gagnsæi. Nemendur vita hvers er krafist til að ná tiltekinni einkunn. Þau geta einnig notað matskvarðann við vinnu verkefnis, metið eigin vinnu út frá viðmiðum matskvarðans, gert sér grein fyrir styrkleikum eigin úrlausnar og hvað þarf að bæta. Fjöldi rannsókna í menntavísindum hefur sýnt fram á gagnsemi matskvarða við að bæta námsárangur.

Matskvarðar geta einnig sparað tíma við einkunnagjöf, þar sem þeir veita skýran ramma fyrir námsmatið.

Áhugaverður fróðleikur frá Center for Teaching & Learning, University of Colorado Boulder:

  • Rubrics – Hér er farið í gerð matskvarða skref fyrir skref, mismunandi tegundir matskvarða, bestu venjur við hönnun þeirra og notkun og sýnd nokkur dæmi um ólíka matskvarða.

Canvas leiðbeiningar kennara: