Flutningur námskeiða á milli Canvas-kerfa
Hér er útskýrt hvernig námskeið er flutt úr einu Canvas-kerfi í annað, frá Canvas hjá einum háskóla yfir í Canvas hjá öðrum.
Ferlið er í tveimur hlutum:
- Námskeiðið er flutt úr fyrra Canvas-kerfinu og námskeiðsskráin vistuð í tölvunni.
- Skráin er flutt inn í námskeið í nýja Canvas-kerfinu.
Canvas býr til sérstaka námskeiðsskrá með endingunni .imscc. Skráin inniheldur uppbyggingu og efni námskeiðsins og er ætluð til innflutnings í Canvas.
Athugið að nemendagögn, s.s. skil nemenda og einkunnir fylgja ekki með.
1. Flytja námskeiðið út og vista í tölvu
Opnaðu námskeiðið sem á að flytja.
- Farðu í stillingar neðst í valmynd námskeiðsins.
- Smelltu á flytja út efni námskeiðs hægra megin á síðunni.
- Veldu námskeið undir tegund útflutnings.
- Smelltu á stofna útflutning.
Canvas undirbýr nú útflutningsskrá námskeiðsins. Það fer eftir stærð námskeið hve langan tíma það tekur. - Þegar útflutningi er lokið birtist tengillinn nýr útflutningur. Smelltu á hann til að hala skránni niður í tölvuna. Hún ætti í flestum tilvikum að vistast í download möppu tölvunnar.
Skráin ber heiti námskeiðs og hefur endinguna .imscc
Ekki þarf að opna eða afþjappa .imscc skrána. Hún er flutt óbreytt inn í hitt Canvas-kerfið.
Útflutningstengillinn er virkur í 30 daga í Canvas, en skrá sem þegar hefur verið vistuð í tölvunni er áfram tiltæk og má flytja inn í Canvas síðar.
2. Námskeiðið flutt inn í annað Canvas
Skráðu þig inn í Canvas-kerfið sem á að taka við námskeiðinu og opnaðu námskeiðsvefinn sem efnið á að fara inn í.
Best er að flytja heilt námskeið inn í tóman eða nýjan námskeiðsvef.
- Farðu í stillingar í valmynd námskeiðsins.
- Smelltu á flytja inn efni námskeiðs hægra megin.
Láttu ekki rauðu viðvörunina hræða þig. - Veldu útflutningspakki Canvas-námskeiðs undir tegund efnis.
- Smelltu á velja skrá.
- Finndu .imscc skrána sem þú hlóðst niður úr fyrra Canvas-kerfinu, veldu hana og smelltu á open.
- Veldu allt efni ef flytja á allt námskeiðið.
- Ef þú vilt flytja dagsetningar námskeiðsins yfir á nýtt tímabil geturðu merkt við stilla viðburði og skiladaga. Ef dagsetningar eiga ekki við má sleppa þessu og laga þær síðar.
- Smelltu á bæta við innflutningsbiðröð.

- Canvas sýnir framvindu innflutningsins.

- Þegar innflutningi er lokið skaltu skoða námskeiðið og ganga úr skugga um að efnið hafi flust rétt.
Ef stendur lokið að hluta undir stöðu eftir innflutninginn er hægt að smella á skoða útgáfur til að kanna hvað fluttist ekki yfir. Þetta getur t.d. verið efni sem gert var með viðbót í fyrra Canvas-kerfinu sem er ekki til staðar í kerfinu sem verið er að flytja inn í.
Nánari upplýsingar
Hvað flyst með námskeiðinu?
Námskeiðsútflutningur getur meðal annars innihaldið:
- uppbyggingu námskeiðsins og stillingar,
- einingar,
- síður,
- skrár,
- verkefni,
- próf,
- spurningabanka,
- umræðuefni,
- tilkynningar,
- matskvarða,
- kennsluáætlun,
- dagatalsatriði.
Classic Quizzes og New Quizzes
Próf eru hluti af námskeiðsútflutningi. New Quizzes hafa verið studd í Canvas course export/Common Cartridge útflutningi síðan 2024. Eftir flutning milli tveggja stofnana er samt mikilvægt að prófa sérstaklega að próf, spurningar og spurningabankar hafi flust rétt, þar sem stillingar og Feature Options geta verið mismunandi milli Canvas-kerfa.
Ef valkosturinn Convert content to New Quizzes birtist við innflutning er hann ætlaður til að breyta Classic Quizzes yfir í New Quizzes. Veldu hann því aðeins ef það er ætlunin.
Hvað flyst ekki með?
Námskeiðsútflutningur er fyrst og fremst ætlaður til að flytja kennsluefni og uppbyggingu námskeiðs, ekki gögn nemenda.
Eftirfarandi flyst ekki með:
- nemendur eða aðrar skráningar í námskeið,
- skil nemenda,
- einkunnir,
- athugasemdir og samskipti nemenda,
- svör nemenda í umræðum,
- ýmsar stillingar ytri kerfa og LTI-verkfæra.
Því þarf til dæmis að yfirfara samþætt verkfæri eins og ytri myndbands-, prófa- eða verkefnakerfi sérstaklega á nýja Canvas-kerfinu.
Eftir innflutning – mikilvægt að yfirfara námskeiðið
Þótt Canvas flytji stóran hluta námskeiðsins sjálfkrafa er ekki ráðlegt að birta námskeiðið strax.
Athugaðu sérstaklega:
- að Einingar og efni þeirra séu á réttum stað,
- að innri tenglar og myndir virki,
- að skrár opnist,
- að verkefni og próf séu rétt uppsett,
- að skiladagar og aðgengisdagsetningar séu réttar,
- að próf og spurningabankar hafi flust rétt,
- að matskvarðar séu til staðar,
- að ytri kerfi og LTI-tengingar virki,
- að valmynd námskeiðsins sé rétt stillt,
- að birting efnis sé rétt.
Gott er að nota Nemandasýn (Student View) áður en námskeiðið er birt.
Varúð ef efni er flutt inn í námskeið sem þegar inniheldur efni
Áhætta: miðlungs – ekki er til einfaldur „Undo“ hnappur fyrir allan innflutninginn.
Innflutningur getur breytt sumum námskeiðsstillingum og endurtekinn innflutningur getur einnig búið til tvítekið efni, sérstaklega próf. Instructure mælir því með að stillingar námskeiðsins séu yfirfarnar eftir innflutning.
Ef hægt er er öruggast að flytja heilt námskeið fyrst inn í tóman námskeiðsvef.
Heimildir
- Instructure: How do I export a Canvas course?
- Instructure: How do I import a Canvas course export package?
- Instructure: Exporting and Moving Canvas Content



