Heim > Kennarar > Þátttaka og skil > Samanburður á Inspera og Canvas prófum

Samanburður á Inspera og nýjum prófum í Canvas

Inspera er rafrænt prófakerfi HÍ og er sérstaklega ætlað formlegum prófum þar sem gerðar eru miklar kröfur um öryggi, prófstjórn og rekjanleika. Prófin geta verið staðpróf, heimapróf, gagnapróf, gagnalaus próf eða munnleg próf. HÍ mælir eindregið með Inspera fyrir loka- og misserispróf sem hafa stífan tímaramma og mikið vægi í lokaeinkunn.

Ný próf í Canvas eru hluti af námskeiðsumhverfinu og henta einkum fyrir óformlegra námsmat, svo sem æfingapróf, sjálfspróf og próf sem veita kennurum og nemendum yfirsýn yfir þekkingu og hugtakaskilning.

Lykilþáttur Inspera Canvas Mat
Megintilgangur
Sérhæft prófakerfi HÍ fyrir formleg rafræn próf, meðal annars loka- og misserispróf.
Prófakerfi innan Canvas sem tengist námskeiðinu og einkunnabók þess.
HÍ mælir eindregið með Inspera fyrir próf með stífan tímaramma og mikið vægi.
Tegundir prófa
Styður meðal annars staðpróf, opin heimapróf, gagnapróf, gagnalaus próf og munnleg próf í stofu eða með fjarfundabúnaði.
Hentar fyrir fjölbreytt námskeiðspróf, æfingapróf, kannanir og sjálfspróf.
Val á prófakerfi þarf að taka mið af tilgangi, vægi og framkvæmd prófsins.
Prófstjórn og ábyrgð
Aðskilin hlutverk fyrir höfunda, prófstjóra, yfirsetu og prófdómara. Prófaskrifstofa hefur yfirsýn yfir prófatökur sem eru í gangi.
Kennari setur upp, birtir og stjórnar prófinu innan námskeiðsins. Aðgangur ræðst af hlutverki og heimildum í Canvas.
Inspera styður betur miðlæga prófstjórn og formlega verkaskiptingu.
Próftakan
Nemendur nota í flestum tilvikum eigin nettengd tæki. Tölvuver HÍ eru notuð þegar nemendur þurfa aðgang að öðrum forritum, til dæmis Excel.
Nemendur taka prófið í Canvas í eigin tæki eða tölvu HÍ eftir fyrirmælum kennara.
Inspera-ferlið er samræmdara og prófaskrifstofa getur aðstoðað við framkvæmdina.
Læstur prófvafri hjá HÍ
Í staðprófum er notaður Safe Exam Browser í Inspera til að læsa tölvu nemandans. Nemandi getur þá aðeins nálgast prófið og þau gögn eða forrit sem heimiluð hafa verið.
HÍ er ekki með læstan prófvafra fyrir Canvas-próf. Nemandi getur því almennt opnað önnur forrit, vefsvæði og gögn í tölvunni.
Inspera hefur skýrt öryggisforskot hjá HÍ þegar prófið á að fara fram í lokuðu umhverfi.
Auðkenning og prófgæsla
Styður innskráningu, staðbundna yfirsetu og miðlægt eftirlit með stöðu próftaka. Fleiri öryggislausnir geta verið háðar leyfum og uppsetningu.
Byggir fyrst og fremst á innskráningu nemandans í Canvas. Canvas sjálft veitir ekki rafræna prófgæslu.
Fyrir próf með mikið vægi þarf skipulagt auðkenningar- og yfirsetuferli.
Aðgangsstýring
Próftímar, yfirsetulykilorð, læstur prófvafri og ýmsar öryggisstillingar.
Opnunar- og lokunartími, tímamörk, aðgangskóði, IP-síur og viðvörun ef nemandi opnar prófið í fleiri en einum vafra eða tæki samtímis.
Stillingar Canvas geta takmarkað aðgang að prófinu en læsa ekki tölvu nemandans.
Spurningabankar og slembival
Spurningabankar, merkimiðar, spurningasett, slembiröðun og útdráttur spurninga úr skilgreindum hópum.
Atriðabankar sem hægt er að deila og nota til að draga spurningar af handahófi. Einnig má stokka spurningar og svarmöguleika.
Bæði kerfi geta búið til mismunandi prófútgáfur. Spurningahópar þurfa að vera sambærilegir að efni og þyngd.
Spurningategundir
Fjölbreyttar sjálfvirkt og handvirkt metnar spurningar, ritgerðir, viðhengi og sérhæfð stærðfræði- og reikningsatriði.
Fjölval, fjölsvar, eyðufylling, samsvörun, röðun, hotspot, ritgerð, skráarskil, stimulus og fleiri spurningategundir.
Bæði duga fyrir flest próf. Prófa þarf sérstaklega stærðfræði, kóða, myndir og sjálfvirka stigagjöf.
Vistun svara
Inspera vistar vinnu nemenda sjálfkrafa á um 15–20 sekúndna fresti, bæði í skýjalausn og staðbundið á tölvu nemandans í tvídulkóðuðu formi.
Canvas vistar svör meðan nemandi vinnur og prófloggur sýnir valda atburði í próftilrauninni.
Inspera veitir sterkari vörn gegn gagnatapi ef nettenging rofnar.
Neyðarskil við nettengingarleysi
Ef tenging næst ekki aftur getur nemandinn valið Save submission as file meðan prófið er enn opið. Þá vistast dulkóðuð .ia-skrá sem prófskrifstofa getur hlaðið inn í Monitor fyrir viðkomandi nemanda.
Canvas býður ekki upp á sambærilega dulkóðaða neyðarskrá. Viðbrögð byggjast á því sem þegar hefur vistast og möguleikum kennara til að veita viðbótartíma eða nýja tilraun.
Inspera hefur skýrt forskot við langvarandi nettengingarleysi.
Eftirlit meðan próf stendur
Prófaskrifstofa og yfirseta geta fylgst með stöðu próftaka í Monitor og brugðist við tæknilegum vandamálum.
Stjórna (e. moderate) sýnir stöðu, tíma og próftilraunir. Kennari getur bætt við tíma eða heimilað aðra tilraun.
Inspera hentar betur þegar miðlæg prófskrifstofa þarf að hafa heildaryfirsýn.
Prófskrár og rekjanleiki
Atvikaskrár eru fyrir próf, próftaka, spurningar og matsferli.
Í prófskrá er hægt að lesa tiltekna virkni meðan á próftilraun stendur.
Inspera býður heildstæðari rekjanleika. Próflskrár einar og sér sanna þó ekki brot nemanda.
Viðbótartími og sérúrræði
Upplýsingar um lengri próftíma flytjast sjálfkrafa úr Uglu í Inspera. Önnur samþykkt sérúrræði eru útfærð í samræmi við þarfir nemandans og fyrirkomulag prófsins.
Kennari getur veitt nemanda fastan viðbótartíma með tímamargfaldara fyrir öll ný próf í námskeiði eða veitt viðbótartíma í einstökum prófum.
Sjálfvirkur flutningur á viðbótartíma úr Uglu í Inspera dregur úr hættu á að samþykktur viðbótartími gleymist.
Aðgengi
Styður aðgengilega spurningagerð en prófa þarf samspil hjálpartækja og Safe Exam Browser fyrirfram.
Canvas hefur almennt gott aðgengi, en einstakar spurningategundir hafa takmarkanir. Hotspot-spurningar eru til dæmis ekki aðgengilegar öllum.
Tryggja þarf jafngilda próftöku og forðast óaðgengilegar spurningategundir.
Nafnlaus yfirferð
Próftakar geta verið nafnlausir gagnvart matsaðilum og nöfn birt síðar samkvæmt skilgreindu ferli.
Styður nafnlausa yfirferð ef viðkomandi valkostur hefur verið virkjaður í stillingum námskeiðs. Nafnleynd lýkur þegar einkunnir eru birtar.
Inspera er betur lagað að formlegu nafnlausu matsferli.