Heim > Kennarar > Hjálp með hæfniviðmiðin

Hjálp með hæfniviðmiðin

Hjálp með hæfniviðmiðin er sérsniðið gervigreindarspjall í ChatGPT sem ætlað er að styðja kennara við að búa til, yfirfara og betrumbæta hæfniviðmið og tengja þau við námsmat. Spjallið er sérstaklega hannað til að svara spurningum um nám, kennslu, hæfniviðmið og námsmat.

Í úttektum á Háskóla Íslands hefur verið bent á þörfina að efla gæði hæfniviðmiða við skólann, samræmi í gerð þeirra og sýnileg tengsl við námsmat. Hæfniviðmið eru hornsteinn námskeiðshönnunar, en það getur verið krefjandi að búa þau til.

Kveikjur

Notandi getur valið að hefja samtal út frá kveikju. Þrjár kveikjur eru í boði:

  • Búa til hæfniviðmið fyrir námskeið
  • Fá umsögn um hæfniviðmið
  • Að tengja námsmat við hæfniviðmið

Eftir að smellt er á kveikju koma fram upplýsingar um næstu skref, ásamt stuttu yfirliti um fræðilegar forsendur sem unnið er út frá. Notandinn er beðinn um að gefa upplýsingar sem gera kleift t.d. að búa til hæfniviðmið fyrir námskeið.

Því ítarlegri upplýsingar sem kennari gefur spjallinu s.s. um námskeið, verkefni, námsmat, áherslur í kennslu, tegund hæfni eða annað sem viðkemur, því raunhæfari og markvissari verða svörin.

Nokkur dæmi um notkun

„Hjálp með hæfniviðmiðin“ er einnig hægt að nota fyrir annað tengd námi og kennslu, s.s. til að flýta fyrir vinnu kennara og sem hugmyndaveitu. Nokkur dæmi:

  • Fá tillögur að verkefnum, kennsluaðferðum og námsmati út frá gefnum forsendum.
  • Láta spjallið búa til matskvarða fyrir tiltekið verkefni eða hæfniviðmið.
  • Láta útbúa matskvarðann fyrir Canvas (CSV upphlaðanleg skrá).
  • Fá hugmyndir að námsmatsaðferðum sem hæfa hæfniviðmiði.
  • Biðja um lista yfir aðgerðasagnir, út frá flokkunarkerfi Bloom, eftir sviðum og stigum/þrepum.
  • Fá útskýringar á einstökum kennsluaðferðum o.s.frv.

Fræðilegar forsendur

Til grundvallar er Bloom flokkunarkerfið, mælanlegar sagnir, SMART gæðaviðmiðin ( Specific, Measurable, Achievable (or Attainable), Relevant, and Time-bound) og samhæfð námskrárgerð (Biggs), sem gervigreindarspjall getur það einnig leitað fanga út fyrir þessa innri þekkingu. Ekki er nauðsynlegt að þekkja fræðin á bak við til að nota spjallið.

Svör eða ráð sem „Hjálp með hæfniviðmiðin“ skilar eru tillögur sem kennari þarf að meta og aðlaga að eigin námskeiði. Kennarinn ber ávallt faglega ábyrgð á því sem að lokum er birt varðandi námskeið.

Persónuvernd

Aldrei ætti að setja inn í gervigreindarspjall viðkvæmar persónuupplýsingar (kennitölu, heilsufarsatriði, o.s.frv.), óbirt rannsóknargögn eða trúnaðargögn. Samtöl geta varðveist tímabundið í þjónustuumhverfi OpenAI.

Spjallið notar aðeins þær upplýsingar sem koma fram í núverandi samtali; ef notandi byrjar nýtt spjall hefur það ekki aðgang að fyrri samtölum.

Höfundur spjallsins sér ekki samtöl og fær engar upplýsingar um notkun kennara.

Takmarkanir og þróun

Þar sem gervigreindin er enn að slíta barnsskónum í íslensku má búast við að einstaka málvillur og klaufalegt orðalag slæðist inn í svör. Ekki er heldur hægt að útiloka að gervigreindin skáldi eitthvað sem passar ekki.

„Hjálp með hæfniviðmiðin“ er enn í þróun og því væri mjög gagnlegt fyrir höfund að fá endurgjöf og stuttar umsagnir um notkun (sendist á kriol@hi.is).