Canvas-moli / Canvas Tip

Hjálp með hæfniviðmiðin – gervigreindarspjall

Hjálp með hæfniviðmiðin er sérsniðið gervigreindarspjall í ChatGPT sem styður kennara við að móta og endurskoða hæfniviðmið og tengja þau við námsmat. Spjallið getur hjálpað við að forðast algeng mistök við gerð hæfniviðmiða s.s. notkun á ómælanlegum sögnum.

Svör eða ráð sem Hjálp með hæfniviðmiðin skilar eru tillögur sem kennari þarf að meta og aðlaga að eigin námskeiði. Kennarinn ber ávallt faglega ábyrgð á því sem að lokum er birt varðandi námskeið.

Hjálp með hæfniviðmiðin er hannað fyrir íslensku en svarar á öðrum tungumálum ef óskað er.

Kveikjur

Notandi getur valið að hefja samtal út frá kveikju. Þrjár kveikjur eru í boði:

  • Búa til hæfniviðmið fyrir námskeið
  • Fá umsögn um hæfniviðmið
  • Að tengja hæfniviðmið við námsmat

Eftir að smellt er á kveikju koma fram upplýsingar um næstu skref, ásamt stuttu yfirliti um fræðilegar forsendur sem unnið er út frá. Notandinn er beðinn um að gefa upp atriði sem gera kleift t.d. að búa til hæfniviðmið fyrir námskeið.

Því ítarlegri upplýsingar sem kennari gefur spjallinu s.s. um námskeið, verkefni, námsmat, áherslur í kennslu, tegund hæfni eða annað sem viðkemur, því raunhæfari og markvissari verða svörin.

Einnig er hægt að ræða við spjallið almennt um mál tengd námi og kennslu.

Bloom, SMART og Biggs

Fræðilegar forsendur:

  • Endurskoðað flokkunarkerfi Blooms (2001) þ.e. þekkingar-, viðhorfa-/tilfinninga- og leiknisvið.
  • Notkun mælanlegra aðgerðasagna samkvæmt Bloom.
  • SMART gæðaviðmið (Specific, Measurable, Achievable, Relevant, Time-bound).
  • Samhæfð námskrárgerð (Constructive Alignment, Biggs).

Í spjallinu getur notandi beðið um nánari útskýringar á þeim forsendum sem það vinnur út frá. Ekki er nauðsynlegt að þekkja fræðin á bak við til að nota spjallið.

Nokkur dæmi um notkun

Hjálp með hæfniviðmiðin er einnig hægt að nota fyrir annað tengd námi og kennslu, s.s. til að flýta fyrir vinnu kennara og sem hugmyndaveitu. Nokkur dæmi:

  • Fá tillögur að verkefnum, kennsluaðferðum og námsmati út frá gefnum forsendum.
  • Láta spjallið búa til matskvarða fyrir tiltekið verkefni eða hæfniviðmið.
    • Láta útbúa matskvarðann fyrir Canvas (CSV upphlaðanleg skrá).
  • Fá hugmyndir að námsmatsaðferðum sem hæfa hæfniviðmiði.
  • Biðja um lista yfir aðgerðasagnir, út frá flokkunarkerfi Bloom, eftir sviðum og stigum/þrepum.
  • Fá útskýringar á einstökum kennsluaðferðum o.s.frv.

Persónuvernd

Aldrei ætti að setja inn í gervigreindarspjall viðkvæmar persónuupplýsingar (kennitölu, heilsufarsatriði, o.s.frv.), óbirt rannsóknargögn eða trúnaðargögn. Samtöl geta varðveist tímabundið í þjónustuumhverfi OpenAI.

Spjallið notar aðeins þær upplýsingar sem koma fram í núverandi samtali; ef notandi byrjar nýtt spjall hefur það ekki aðgang að fyrri samtölum.

Höfundur spjallsins sér ekki samtöl og fær engar upplýsingar um notkun kennara.

Takmarkanir og þróun

Þar sem gervigreindin er enn að slíta barnsskónum í íslensku má búast við að einstaka málvillur og klaufalegt orðalag slæðist inn í svör. Ekki er heldur hægt að útiloka að gervigreindin skáldi eitthvað sem passar ekki.

Hjálp með hæfniviðmiðin er enn í þróun og því væri mjög gagnlegt fyrir höfund að fá endurgjöf og stuttar umsagnir um notkun (sendist á kriol@hi.is).