Í Canvas-mola vikunnar eru sýndar nokkrar aðgerðir sem geta flýtt fyrir vinnu kennara eða jafnvel bjargað málum á ögurstundu (myndband 5 mín.).
Í myndbandinu er farið í:
- Einföld atriði eins og að færa til og afrita, deila dóti með öðrum kennara eða afrita einstök atriði yfir í annað námskeið.
- Muninn á að fjarlægja og eyða. Verkefni, síðu, umræðu eða próf er hægt að fjarlægja úr viku/einingu en til að eyða þarf að fara í heimahöfn atriðis s.s. í síður eða verkefni í valmynd námskeiðs.
- Hvernig má endurheimta fyrri útgáfu Canvas síðu, skoða sögu síðunnar og hvernig efni hennar var á mismunandi tíma. Þó margir kennarar þekki kosti síðna í Canvas og noti þær jafnvel mikið vita færri af þessum möguleika.
- Einfalda leið til að endurheimta verkefni sem hefur verið eytt af námskeiðsvef. Skil nemenda ásamt einkunnum fylgja með þegar verkefni er endurheimt. Ef verkefnið var með matskvarða fylgja einkunnir ef þær höfðu verið gefnar en ekki matskvarðinn.
