Heim > Kennarar > Námsefnið > Skannað efni

Skannað efni

Skýrt og aðgengilegt

Þegar skönnuðu efni er deilt með nemendum, til dæmis í PDF-skjali, er mikilvægt að það sé skýrt, læsilegt og lesanlegt með skjálesara. Blindir og sjónskertir notendur treysta oft á skjálesara til að hlusta á lesefni. Ef skannað skjal er eingöngu mynd af texta þarf yfirleitt að beita textagreiningu (OCR) svo textinn verði aðgengilegur.

Ef skannaður texti er í formi myndar virkar textinn ekki í skjálesurum og er þar með ekki aðgengilegur öllum.

Er skjalið aðgengilegt?

Einföld leið til að kanna hvort texti í PDF skjali sé aðgengilegur er að:

  1. velja allan texta skjalsins,
  2. afrita,
  3. líma inn í t.d. Notepad eða Notes,
  4. og athuga hvort textinn skili sér rétt.

Ef ekki er hægt að velja og afrita textann, eða ef hann birtist brenglaður, er skjalið líklega ekki aðgengilegt og OCR (Optical character recognition) hefur sennilega ekki verið beitt.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um aðgengileg PDF-skjöl má til dæmis finna hér: