Heim > Teachers > Recordings and Online Meetings > Zoom Meetings in Canvas > Adding a Zoom Invitation to a Page and the Course Calendar

Adding a Zoom Invitation to a Page and the Course Calendar

Í myndskeiðinu er útskýrt hvernig tengill á Zoom fund er settur á síðu og í dagatal námskeiðs.

Til að láta síðu koma fram í námskeiðsdagatali þarf að merkja við bæta á verkalista nemenda neðst í uppsetningu síðunnar og velja dagsetningu og tíma. Síðan kemur þá fram bæði í verkalista nemenda (e. to-do list) og í dagatali.

Fleiri kostir þess að setja upp fundarsíðu:

  • Með því að setja upp síðu er hægt að styðja við skipulag námskeiðsvefs s.s. að láta síðuna um fundinn koma fram í viðeigandi einingu/viku (e. module).
  • Síða býður einnig upp á að setja nánari upplýsingar um fundinn s.s. fundardagskrá, skjöl og tengla í gögn.
  • Ef fundur er tekinn upp er hægt að setja upptökuna á fundarsíðuna.