Modules
Á heimasíðu námskeiðs er efni námskeiðs sett upp í sk. einingar. Eining er nokkurs konar ílát og getur staðið fyrir viku, námshluta eða annað sem hentar fyrirkomulagi kennslu eða skipulagi námskeiðs. Námsefni, verkefni, tenglar, skrár eða fyrirlestrar eru sett í viðeigandi einingar.
- Notandinn getur fellt saman allar einingarnar, opnað eina og eina eða allar í einu.
- Kennarinn getur breytt röð eininganna t.d. dregið þá einingu sem verið er að fara yfir, s.s. núverandi viku, efst í röðina.
- Hægt er að flytja innihald á milli eininga.
- Með því að setja forkröfur og kröfur, er hægt að stýra leið nemanda í gegnum námskeið, s.s. krefjast þess að nemandi ljúki tilteknu efni til að fá aðgang að efni næstu einingar. Sjá nánar um tileinkunarslóðir (e. mastery paths).
Hafðu samræmi í uppröðun efnis í einingunum, t.d. lesefni eða vikuyfirlit efst, þá fyrirlestra, verkefnaskil, próf, umræður og samantekt.
Gefðu einingunum hnitmiðaða skýra titla þannig að nemdur sjái fljótt það sem leitað er að: Dæmi: 1. – 7. janúar | HVAÐ ER VIRKT NÁM?
Búðu til lýsandi fyrirsagnir innan eininga.

Skipulag námshluta/vikna (eininga)
Samræmi í titlum og fyrirsögnum
Fljótlegra er að skima efni námskeiðsvefs þegar titlar eininga eru byggðir upp á sama hátt. Þetta er hægt að gera á ýmsa vegu, t.d. með því að hafa dagsetningar viku ávallt fremst í titli og síðan heiti sem vísar í efnið (sjá mynd neðar).
Það gefur einnig góða yfirsýn yfir efni námskeiðsvefs ef titlar eininga eru hafðir lýsandi fyrir það sem tekið er fyrir.
Eftir atvikum s.s. í efnislitlum námskeiðum er hægt að nota síður í stað eininga til að skipuleggja efnið.
Efnið í sömu/sambærilegri röð
Þegar atriði innan eininga s.s. fyrirlestrar, tenglar í efni, skil eða umræður er haft í sömu eða sambærilegri röð er námskeiðsvefurinn skilvirkari og það tekur nemendur styttri tíma að finna efni. Þetta skipulag er hægt að ýta enn frekar undir með endurteknum fyrirsögnum innan eininga, hafa fyrirsagnir í sömu röð í öllum einingum og nota inndrátt þar sem hann á við.
Efnismiklir námshlutar
Til að fyrirbyggja að nemendur eyði of miklum tíma í skroll og leit í löngum efnismiklum einingum er er gott að flokka efnið á síður. Til dæmis með því að setja tengla í allt lesefni viku á eina síðu. Með því er hægt að hafa einn tengil fyrir lesefni innan einingar í stað þess að hafa tengil á hverja og eina grein. Rétt er að halda sama fyrirkomulagi í hverri einingu.
Stillingar og leiðarstýring
Hefurðu farið yfir tenglana í valmynd námskeiðsins? Lærðu um stillingar og leiðarstýringu námskeiðs til að sjá hvernig þú getur breytt valmyndinni, einkennismynd námskeiðs og á hvaða tungumáli námskeiðið birtist nemendum.
Heimasíða námskeiðs
Sjálfvalin heimasíða námskeiðs sínir einingarnar þar sem námsefnið er að finna. Sú heimasíða hentar vel í flestum tilvikum en Canvas býður þó fleiri möguleika varðandi heimasíðu námskeiðs. Sjá nánar: Heimasíða námskeiðs.
