Heim > Teachers > Recordings and Online Meetings > Teams Meetings in Canvas > The Teams Meeting Environment
The Teams Meeting Environment
Nokkur ráð
- Mælt er með því að endurræsa tölvuna sem notuð verður áður en kemur að fundi.
- Betra er að vera í netsamband með snúru en nota þráðlaust netsamband.
- Áður en fjarfundur er settur í gang kemur sér vel að loka öllu því sem ekki stendur til að sýna á fundinum en opna og hafa tilbúið það sem maður ætlar að sýna
- Ef maður er að halda fund í Teams í fyrsta skipti er ágætt að setja fund í gang til prufu til að kynnast umhverfinu og prófa atriði sem maður ætlar að nota á fundinum.
- Ef taka á upp fund þarf að láta þátttakendur vita af því fyrir fram og láta einnig vita þegar upptaka er sett í gang.
- Það er góð regla að slökkva á hljóðnemanum þegar maður sjálfur er ekki að tala, til að lágmarka hættu á hljóðtruflunum.
- Fundarspjallið er oft notað til að taka á móti spurningum og til að láta þátttakendur kynna sig í upphafi en ef sá sem heldur fundinn er ekki með aðstoð getur verið hentugra að slökkva á spjallinu.
