Emojis and Icons



Tjámyndir
Tjámyndir (e. emoji) eru litlar myndir sem hægt er að bæta t.d. framan eða aftan við texta. Tjámyndir er hægt að nota í ritvinnsluforritum og einskorðast ekki við Canvas.
Flýtileiðin til að kalla fram tjámyndir er að halda niðri Windows hnappi lyklaborðs um leið og stutt er á punktinn. Einnig er hægt að hægri smella og velja emoji. Í Makka er flýtileiðin að halda niðri Control + Command um leið og stutt er á bilslánna. Þessar flýtileiðir virka í Canvas jafnt sem öðrum forritum.

Tákngerðartólið í Canvas ritlinum
Í Canvas ritlinum er tól til að búa til táknmyndir. Hnappinn fyrir tákngerðartólið má sjá á skjáskotinu fyrir neðan.

Skoða dæmi um táknmyndir í Canvas
Tákngerðartólið býður upp á nokkra einfalda möguleika s.s. að velja lögun myndar, stærð, bakgrunnslit, útlínu og setja inn texta. Hægt er að nota tilbúnar myndir sem fylgja eða hlaða upp sínum eigin myndum. Eftir að myndin er komin inn í ritilinn er hægt að stækka hana eða minnka með því að smella á hana og draga jaðrana til. Táknmyndirnar eru á forminu svg (Scalable Vector Graphics) og haldast því jafn skýrar þó þær séu stækkaðar. Myndirnar eru vistaðar í skráarsafni námskeiðs í möppunni Tákngerðartákn.

