Zoom Meetings in Canvas
HÍ-leyfi kennara fyrir Zoom
Til að nota Zoom í Canvas þarf kennari að hafa HÍ-leyfi fyrir Zoom (e. Education licence). Leyfið gefur kost á að setja upp fjarfund fyrir 300 nemendur í ótakmarkaðan tíma. Nauðsynlegt er að leyfið tilheyri sama netfangi og kennari notar í Canvas svo að Zoom virki. Beiðni um HÍ-leyfi fyrir Zoom þarf að senda á hjalp@hi.is.
Zoom tengt við Panopto
Mögulegt er að tengja Zoom við Panopto. Með því móti verða upptökur af fjarfundi í Zoom aðgengilegar í Panopto og geta þá birst sjálfvirkt á námskeiði í Canvas (fer eftir stillingum). Zoom er tengt við Panopto á rec.hi.is í stillingum notandans. Sjá nánar Zoom tengt við Panopto.
