Ritillinn er það verkfæri sem er mest notað í Canvas. Hann þarf að nota t.d. þegar búin er til tilkynning, verkefni eða síða í námskeiði. Fyrir utan hefðbundar aðgerðir eins og að móta texta, setja inn myndir og vídeó er hægt að taka upp stutt myndband í ritlinum, setja upp fund í Teams, búa til tengla með auðveldum hætti í efni námskeiðs t.d. í skrár, verkefni eða kennsluáætlun. Að læra vel á aðgerðir ritilsins sparar tíma þegar fram í sækir.
Mundu að aðgengileiki efnisins er áríðandi!
Mikilvægt er að efnið sem unnið er í ritlinum sé aðgengilegt öllum, m.a. þeim sem nota talgervla eða önnur hjálpartæki. Til að stuðla að því að svo sé þarf að hafa eftirfarandi í huga.
Fyrir nemendur sem nota talgervla er áríðandi að fyrirsagnir og undirfyrirsagnir séu mótaðar rökrétt og að möguleikar ritilsins séu notaðir til þess.
Texti tengils á að vera lýsandi fyrir það sem hann opnar, svo sem titill greinar. Notið ekki tengla eins og „Lesa meira“, „Smella hér“ eða að líma inn vefslóðir. Skjálesarar lesa upp texta í tenglum og því er áríðandi að hann sé skýr. Til að breyta texta tengils er ritillinn opnaður, smellt einu sinni á tengilinn og farið í valkosti tengils. Í panel sem opnast hægra megin er texta tengilsins breytt.
Einungis á að nota aðgengilegar leturgerðir, t.d. sjálfvalda leturgerð Canvas, Arial, Verdana eða Tahoma. Texta á aldrei að minnka niður fyrir 12pt og ekki að undirstrika nema ef um tengla er að ræða. Nota skal valmöguleika ritilsins til að búa til bólulista og númeraða lista. Ávallt skal setja punkt aftan við setningar. Textasnið (lögun, litur og stíll) skyldi aldrei nota eingöngu til að koma upplýsingum á framfæri sem dæmi að hafa einstök orð feitletruð, skáletruð eða í öðrum lit án þess að útskýra hvers vegna.
Annar texti (e. alt text) þarf að fylgja öllum myndum sem ekki eru skilgreindar sem myndskreytingar. Þetta er sá texti sem er lesinn upp þegar vefsíða er skoðuð með talgervli/skjálesara t.d. af blindum og sjónskertum. Annar texti birtist einnig í stað myndar, áður en mynd nær að hlaðast s.s. vegna þyngdar eða lélegrar nettengingar eða þegar vefsíða er skoðuð án mynda.
Annar texti lýsir innihaldi myndar og á að vera stuttur og skorinorður án þess að fórna nákvæmni. Hann inniheldur venjulega örfá orð en eina til tvær setningar í undantekningartilvikum. Sama mynd getur haft mismunandi annan texta eftir því í hvaða samhengi hún er birt.
Annar texti á ekki: að endurtaka það sem kemur fram í texta við lýsingu myndar eða innihalda „mynd af“ eða „myndin sýnir“ þar sem talgervillinn tilkynnir að um mynd sé að ræða.
Ef mynd er eingöngu til skreytingar skal merkja við það og sleppa öðrum texta.
Sjá nánari upplýsingar og dæmi um annan texta mynda: Alternative Text. WebAIM web accessibility in mind.
Hnappur neðst til hægri í Canvas ritlinum kannar aðgengileika efnisins og gefur upplýsingar um margt af því sem þarf að laga. Með því að taka tillit til athugasemdanna og lagfæra það sem bent er á styður þú við að allir geti nýtt sér efnið.
Sjá nánar um aðgengi á kennari.hi.is.
